„Mér fannst þau [peningastefnunefnd Seðlabankans] vera með góðan rökstuðning fyrir því að halda vöxtum óbreyttum,“ segir Jón Sigurðsson, forstjóri Stoða, um vaxtahækkun gærdagsins. Seðlabankinn hækkaði vexti í gær um 0,25 prósentustig.Peningastefnunefnd rökstuddi hækkunina með spá Seðlabankans um aukna verðbólgu næstu mánuði. Þau töldu óvissuna mikla, ekki síst hvað varðar þróun alþjóðlegra efnahagsmála og framvindu á innlendum vinnumarkaði.Ef verðbólga mælist yfir 4,7 prósentum í lok ágúst opnast heimild í kjarasamningum til að segja þeim upp vegna forsendubrests.„Það vakti athygli mína að seðlabankinn hafi ákveðið að hækka vexti um 0,25 punkta í ljósi þess hvernig rökstuðningur nefndarinnar var, ef maður les í gegnum hann þá segja þau sjálf að verðbólgan sé að hluta til út af stríðsátöku