Rannsóknarboranir Eyjaganga á Landeyjasandi langt komnar

Eyjagöng ehf. hafa gengið frá samningi við norska ráðgjafafyrirtækið Norconsult um að vinna heildstætt kostnaðar- og fýsileikamat á gerð neðansjávarganga milli lands og Vestmannaeyja.„Verkefnið er mikilvægur áfangi í að kortleggja tæknilegar forsendur samgöngubótar sem getur tryggt heilsárs vegtengingu meginlandsins við Vestmannaeyjar,“ segir í tilkynningu frá Eyjagöngum.Norconsult býr yfir víðtækri reynslu af hönnun og mati á flóknum neðansjávargöngum á alþjóðavísu, meðal annars í Noregi og Færeyjum. Fyrirtækið metur hversu raunhæft verkefnið er út frá jarðfræðigögnum sem Eyjagöng hafa aflað í sumar.Rannsóknarborunum á Landeyjasandi lýkur í lok mánaðarins. Búið er að bora 225,5 metra af þeim 300 metrum sem fyrirhugaðir eru. Verkfræðistofurnar Efla og Völuberg hafa haft umsjón og eftirlit
Rannsóknarboranir Eyjaganga á Landeyjasandi langt komnar

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd