Norður-Kóreumenn skutu tíu skammdrægum skotflaugum á loft í morgun. Her Suður-Kóreu greinir frá þessu.Donald Trump forseti Bandaríkjanna ákvað í vikunni að draga mjög úr sameiginlegum heræfingum með Suður-Kóreumönnum. Hann sagði við blaðamenn í gær að hann ætlaði að hitta Kim Jong-un, leiðtoga Norður-Kóreu, síðar á árinu. Til stæði að endurlífga sambandið sem tókst með leiðtogunum tveimur á fyrra kjörtímabili Trumps í embætti.Bandamenn Bandaríkjanna í Asíu hafa goldið varhug við skyndilegum og nýefldum áhuga Trumps á sambandi Bandaríkjanna og Norður-Kóreu.Trump sagði í gær að það væri mikilvægt að eiga í góðum tengslum við Kim. Hann bætti því við að stjórnvöld í Norður-Kóreu hefðu yfir 57 „afar kraftmiklum“ kjarnorkuvopnum að ráða.Varnarmálaráðuneytið í Suður-Kóreu telur að nágrannarnir í