Rafleiðni jókst umtalsvert í nótt

Rafleiðni jókst umtalsvert í Múlakvísl í nótt og náði toppi um klukkan 1 eftir miðnætti. Sigríður Magnea Óskarsdóttir, náttúruvársérfræðingur á Veðurstofu Íslands, segir rafleiðnina óvenju háa miðað við árstíma.„Hún hækkaði umtalsvert eftir miðnætti og náði toppi svona um og upp úr klukkan 1 sem lækkaði svo aðeins. Þá fór hún hæst í yfir 500 míkróS/cm. Hún er enn þá há og vatnshæð hefur hækkað en ekkert mjög mikið þar sem að áin grefur sig og dreifir sér. En það er enn talsvert vatn í ánni,“ segir Sigríður. Rafleiðnin var 493 míkróS/cm um klukkan 8, að sögn Sigríðar. Til samanburðar var gildið innan við 300 í gær, sem þótti hátt.„Það eru nokkur ár síðan við fengum svona háa rafleiðni í Múlakvísl, hún er óvenju há en þetta er alls ekki óþekkt.“Þessu fylgir mikil gasmengun. „Það þarf að fara
Rafleiðni jókst umtalsvert í nótt

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd