Forsetahjónin Halla Tómasdóttir og Björn Skúlason hófu þriggja daga ríkisheimsókn til Eistlands í gær. Gestgjafar þeirra eru forseti Eistlands, Alar Karis, og eiginkona hans, Sirje Karis. Markmið heimsóknarinnar er að styrkja góð tengsl Íslands og Eistlands.