Talinn brotið ýmsar umferðarreglur áður en hann klessti á ljósastaur

Ökumaður er grunaður um ýmis umferðarlagabrot sem lögregla telur að hafi valdið umferðaróhappi í miðborg Reykjavíkur seint í gærkvöld. Rannsókn stendur yfir á tildrögum óhappsins.Enginn slasaðist en ökutæki og ljósastaur skemmdust að því er segir í morgunskeyti lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Minni háttar líkamsárás er til rannsóknar í því umdæmi lögreglunnar sem sinnir Hafnarfirði, Garðabæ og Álftanesi.Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins réði á þriðja tímanum í nótt niðurlögum elds á gámasvæði í Hafnarfirði, þar sem enginn var í hættu. Að öðru leyti fjallar skeyti lögreglunnar um afskipti hennar af ökumönnum sem frömdu umferðarlagabrot af ýmsu tagi í margvíslegu ástandi.Engan sakaði í minni háttar umferðaróhappi í úthverfi. Nokkrir voru stöðvaðir fyrir hraðakstur og sá sem hraðast fór var
Talinn brotið ýmsar umferðarreglur áður en hann klessti á ljósastaur

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd