Alma D. Möller, heilbrigðisráðherra var nýlega í heimsókn hjá Heilsustofnun Náttúrulækningafélags Íslands í Hveragerði þar sem hún skrifaði undir samning um styrkingu reksturs stofnunarinnar með auknum fjárframlögum frá ríkinu næstu fjögur árin.Fjölbreyttur matur er í boði fyrir allt það fólk sem nýtir sér þjónustu Heilsustofnunar en kjöt eða kjötafurðir eru þó ekki á boðstólum og hafa aldrei verið. Hvað segir Alma við því?„Mér finnst það bara allt í lagi. Við eigum að takmarka kjötneyslu, það væri auðvitað allt í lagi að borða eitthvað af kjöti en við þurfum að hugsa um að borða ekki alltof mikið af því. Við þurfum almennt að auka neyslu grænmetis, ávaxta og trefja en hér er nú fiskur í boði allavega tvisvar í viku en ég held að fólk hafi almennt bara mjög gott af því að kynnast svona góm