Hæðahryggur liggur yfir landinu í dag frá hæð suðvestur í hafi. Fremur hægar vestlægar eða breytilegar áttir verða ríkjandi og víða líkur á þokulofti, einkum við ströndina. Hitinn verður á bilinu 11 til 18 stig, hlýjast inn til landsins en svalast í þokuloftinu.Á föstudaginn nálgast lægð landið úr vestri með meiri vindhraða og smá vætu vestanlands. Smám saman eykst úrkoma þar þegar líður á kvöldið, en annars áfram milt. Hægari vindur og úrkomulítið verður austanlands fram eftir deginum, en dálítil væta með kvöldinu þegar veðraskilin færast yfir landið. Lægðin fjarlægist norðurströndina aðfaranótt laugardags, en þá nálgast önnur lægð úr suðvestri og á laugardag er útlit fyrir heldur ákveðna og vætusama suðvestanátt og heldur kólnandi veður. Yfirleitt hægari vindur og úrkomuminna norðaustanl