Heildarskuldir ríkissjóðs Bandaríkjanna nema 40 billjónum dala og hafa tvöfaldast á einum áratug.Hvelfingin á þinghúsinu á Capitolhæð í Washington.AP / Mariam ZuhaibFjármálaráðuneytið greindi frá þessu í gær og segir að verulegan hluta megi rekja til mikillar lántöku á tímum kórónuveirufaraldursins, fyrst í forsetatíð Donalds Trump og síðan Joes Biden. Þann hluta sem eftir standi megi rekja til ákvarðana forsetanna tveggja auk langvarandi ójafnvægis milli skatttekna og útgjalda ríkisins.Reuters segir skuldir Bandaríkjanna hafa aukist um alls 11,6 billjónir dala á þeim tíma sem Trump hefur gegnt forsetaembætti, alls fimm ár og sjö mánuði. Skuldirnar jukust um 8,4 billjónir í fjögurra ára forsetatíð Bidens.