Ástralski utanríkisráðherrann Penny Wong segist vera æfareið og vonsvikin vegna þess að ísraelsk stjórnvöld hyggjast ekki hefja sakamálarannsókn á drápi Lalzawmi „Zomi“ Frankcom, ástralsks starfsmanns hjálparsamtaka og samstarfsfólks hennar á Gaza.Wong boðaði ísraelska sendiherrann Hillel Newman á sinn fund og tjáði honum hug sinn og bað sendifulltrúa Ástralíu að koma skoðun sinni á framfæri við ísraelsk stjórnvöld.Wong sagði það sérstaklega særandi og móðgandi fyrir fjölskyldu Frankcom, Ástrali alla og fólk sem sinnir mannúðaraðstoð að Ísraelsher tilkynnti ákvörðun sína á Alþjóðadegi mannúðaraðstoðar.Frankcom var meðal sjö starfsmanna World Central Kitchen sem létu lífið í árás Ísraelshers á bílalest á Gaza vorið 2024. Dauði þeirra vakti mikla reiði um heim allan og endurvakti háværar krö