Donald Trump Bandaríkjaforseti hótar að ráðast harkalega að efnahag Írans og refsa þeim löndum sem liðsinni Írönum eða eigi við þau viðskipti af nokkru tagi. Trump kallar aðgerðirnar efnahagslegan stríðsrekstur og einangrun.„Í dag tilkynni ég harkalegustu efnahagsaðgerð sem nokkuð ríki hefur mátt þola,“ skrifaði Trump á samfélagsmiðilinn Truth Social. Hann tíundaði hvorki hverjar refsingarnar yrðu né nafngreindi önnur lönd en Íran.Hins vegar sagði forsetinn að olíusmygli yrði að ljúka umsvifalaust og einnig gjaldeyrisskiptasamningum og peningamillifærslum. Einnig yrði að stöðva starfsemi gjaldeyrisskiptastofa og það sem hann kallaði skálkaskjólsfyrirtæki.Stjórnvöld í Sameinuðu arabísku furstadæmunum tilkynntu á þriðjudag að öllum viðskiptum við Íran yrði hætt eftir eldflaugaárás þaðan. Lön