„Mín trú að við séum núna að horfa á toppinn“

Daði Már Kristófersson, efnahags- og fjármálaráðherra, segist skilja vel að fólk sé pirrað yfir því hversu langan tíma taki að ná verðbólgu niður. Hann segir að baráttan við verðbólguna snúist um tiltrú á efnahagsstjórninni og að hann trúi því sjálfur að það horfi í rétta átt.Daði Már var gestur Kastljóss í kvöld.Daði segir ríkisstjórnina hafa lagt mikla áherslu á hallalaus fjárlög. Sú stefna hefur verið gagnrýnd, meðal annars með tilliti til gjaldskrárhækkana og kílómetragjalds á bifreiðum.Daði segir að staðan á húsnæðismarkaði valdi sér áhyggjum. Bakslag í framleiðslu á húsnæði þýði að ekki verði til húsnæði þegar efnahagurinn batnar. Það leiði til verðhækkana og verðbólgu.Hann vill þó ekki meina að vaxtahækkun Seðlabankans hafi ekki verið skynsamleg.
„Mín trú að við séum núna að horfa á toppinn“

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd