Makrílvertíðin er vel á veg komin. Heildarúthlutun afla var rúm 29 þúsund tonn. Það er minna en síðustu ár þegar 90-120 þúsund tonnum var úthlutað.Þar til í desember hafði Ísland staðið utan við fjölþjóðasamninga um makríl og úthlutað kvóta einhliða. Makríll er einn deilistofna sem samið var um í fjórhliða samningi milli Íslands, Noregs, Bretlands og Færeyja. Af samningnum leiða minnkaðar aflaheimildir.Magnús Þór Róbertsson, rekstrarstjóri Brims á Vopnafirði, finnur vel fyrir því.„Til dæmis í fyrra á síðustu vertíð vorum við að byrja um mánaðamótin júní–júlí. Núna erum við að taka inn fyrsta farm 9. ágúst.“Kristján Þorvarðarson, skipstjóri á Venus, segir veiðina hafa gengið þokkalega. Hann segist eiga eftir fjóra til fimm túra áður en kvótinn klárast.