Björgunarsveitir að störfum í Kyiv eftir loftárás í maí.EPA / MYKOLA TYMCHENKO Rússlandsher hóf eldflaugaárás á úkraínsku höfuðborgina Kyiv í kvöld og alþjóðlegar fréttaveitur segja minnst tólf sprengingar hafa kveðið við í miðborginni. Borgarstjórinn Vitali Klitschko segir langdrægum flaugum hafa verið beitt við árásina og þær hafi hæft þrjú hverfi borgarinnar, íbúðarhús jafnt sem aðrar byggingar. Borgarstjórinn segir minnst fjóra hafa særst í árásinni og nokkrir sitji fastir í sprengjubyrgi, án þess að tíunda það frekar.