Tilkynning barst Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins laust eftir klukka ellefu í kvöld um eldsvoða á geymslusvæði á Völlunum í Hafnarfirði. Guðjón Ingason varðstjóri sagði í samtali við fréttastofu að þarna logaði í plastkörum og bílhræjum og beðið væri liðsinnis gröfu til að róta í því svo komast megi að rótum eldsins. Guðjón sagði áhöfn á einum bíl hafa verið senda á vettvang, sem réði vel við eldinn, sem væri þó talsverður. Enn væri nokkur vinna eftir en hvorki fólk né annað í hættu.