Jarðskjálfti af stærðinni 4,5 reið yfir í Norðurlandsfylki

Jarðskjálfti af stærðinni 4,5 reið yfir í Norður-Noregi í kvöld. Samkvæmt fréttum norska ríkisútvarpsins NRK átti skjálftinn upptök í hafinu undan hafnarborginni Bodø í Norðurlandsfylki. Skjálftinn var tiltölulega kröftugur á norskan mælikvarða en ætti þó ekki að hafa alvarlegar afleiðingar í för með sér, hefur NRK eftir Arve E. Mjelva hjá NORSAR, rannsóknarstofnun sem sérhæfir sig í jarðskjálftafræði og eftirliti með kjarnorkusprengingum. Miklu máli skipti þó hvar skjálftinn eigi upptök sín. Nokkrar tilkynningar um skjálftann bárust NRK og fylkislögreglunni og fólk lýsir hvernig húsgögn og lausamunir hristust til. Stig Østbø, upplýsingafulltrúi lögreglunnar, segir skjálftann hafa hrist lögreglustöðina og því hafi verið tekið að leita upplýsinga. Jarðskjálfti af stærðinni þrír varð í austu
Jarðskjálfti af stærðinni 4,5 reið yfir í Norðurlandsfylki

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd