Aðstoðarframkvæmdastjóri ASÍ segir stýrivaxtahækkun veruleg vonbrigði. Flókið verði að vinna úr því ef verðbólga mælist umfram forsenduákvæði kjarasamninga. Stjórnvöld og hið opinbera hafi ekki staðið nógu þétt að baki markmiðum kjarasamninga.Alþýðusamband Íslands, ASÍ, sendi frá sér yfirlýsingu í dag. Þar kemur fram að vaxtahækkunin sé röng og illa tímasett. Henný Hinz er aðstoðarframkvæmdastjóri ASÍ. Hún segir ákvörðunina geta haft ýmsar afleiðingar í för með sér.„Það voru auðvitað veruleg vonbrigði á þessum tímapunkti að fá þriðju stýrivaxtahækkun ársins inn í þá stöðu sem auðvitað blasir við okkur á vinnumarkaði,“ segir Henný. ENGIN LAUNUNG AÐ VEXTIR OG VERÐBÓLGA BÍTI Á HEIMILI OG FYRIRTÆKI Henný segir útlit fyrir það að verðbólga verði umfram forsenduákvæði kjarasamninga þegar Hags