Jarðskjálfti, sem mældist 4,5 stig, skók Norður-Noreg klukkan 23.06 í kvöld að staðartíma, 21.06 á Íslandi, og voru upptökin tíu kílómetra undir hafsbotni úti fyrir Meløy í Nordland-fylki, 75 kílómetra suðvestur af Bodø, samkvæmt evrópsku EMSC-jarðskjálftamiðstöðinni.