Harry Bretaprins og eiginkona hans Meghan, hertogaynjan af Sussex, hyggjast flytja frá Bandaríkjunum og aftur til Bretlands síðar í þessum mánuði.Þrátt fyrir flutningana stendur ekki til að hjónin taki upp opinber störf fyrir konungsfjölskylduna að nýju.Samkvæmt heimildum breskra fjölmiðla ætla hjónin að setjast að fyrir utan London, í húsnæði sem tengist ekki konungsfjölskyldunni.Börn þeirra, Archie prins, sjö ára, og Lillibet prinsessa, fimm ára, hafa verið skráð í breskan skóla og eiga að hefja nám þar í haust. STIRT SAMBAND VIÐ KONUNGSFJÖLSKYLDUNA SÍÐUSTU ÁR Karl Bretakonungur var látinn vita af flutningum hertogahjónanna um helgina en Vilhjálmur prins, bróðir Harrys, og eiginkona hans, Katrín prinsessa, hafa einnig verið upplýst.Harry og Meghan heimsóttu Karl konung í júlí ásamt bö