Rannsóknir eru hafnar á bóluefni við bundibugyo-afbrigði ebóluveirunnar. Ebólufaraldur sem geisar í Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó er orðinn sá mannskæðasti í sögu landsins. Frá því í maí, þegar Alþjóðaheilbrigðisstofnunin lýsti yfir faraldri, hafa 2.325 látist af völdum veirunnar.Guðrún Aspelund sóttvarnalæknir segir að Oxford-háskóli í samstarfi við aðra sé byrjaður á tilraunum á nýju bóluefni. Þar á meðal séu klínískar rannsóknir á ungu heilbrigðu fólki. Þær séu gerðar til að kanna öryggi bóluefnisins og mæla mótefnamyndun áður en viðameiri rannsóknir eru gerðar. Það geti tekið nokkurn tíma að þróa bóluefnið.„Það tekur örugglega einhverja mánuði en það er reynt að flýta því sem hægt er, ekki með því að sleppa því sem er nauðsynlegt eða taka einhverjar áhættur en þar sem hægt er að gera hlu