Ungur maður í Bretlandi sagði ótrúlega sögu sína í viðtali við morgunþáttinn This Morning í morgun. Þegar hann var lítið barn gekkst hann undir ýmsar læknismeðferðir vegna fjölda sjúkdóma sem hann var sagður þjást af. Fékk hann í kjölfarið nafnbótina veikasta barn Bretlands.