Minkabóndinn á Dalsbúi: „Við erum að missa svona þrjú til fimm dýr á sólarhring“

Minkarnir í Dalsbúi eru í áfalli eftir að þeim var sleppt úr búrum sínum í lok júlí. Allt af fimm dýr drepast enn dag hvern. Lögregla hefur engan grunaðan enn um verknaðinn. RÁÐAST JAFNVEL HVERT Á ANNAÐ Ásgeir Pétursson, minkabóndi í Dalsbúi, segir að búið sé að ná flestum dýrunum. Yngri dýrin hafi fundist nær búinu og því lifað af fremur en þau eldri - sem voru kjarkaðri og fóru lengra. Það hafi þurft að skjóta þau dýr, því dýr sem fóru út fyrir öryggisgirðingu máttu ekki koma aftur í búið vegna smithættu. Hann segir að það hafi þurft að drepa um fjögur til fimm hundruð dýr. Um tólf þúsund dýr séu eftir.„Eftirköstin eru þessi að við erum að missa svona þrjú til fimm dýr á sólarhring.“Eru þau þá að ráðast hvert á annað?„Já bæði eru þau að ráðast hvert á annað og svo er náttúrulega bara
Minkabóndinn á Dalsbúi: „Við erum að missa svona þrjú til fimm dýr á sólarhring“

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd