Tíu dagar eru þar til þjóðin gengur að kjörborðinu og greiðir atkvæði um það hvort aðildarviðræður við Evrópusambandið verði hafnar að nýju. Fréttastofa óskaði nýverið eftir spurningum frá almenningi um mögulegar aðildarviðræður og margir svöruðu kallinu.Spurningarnar voru fjölbreyttar og nokkrar þeirra sneru að stöðu fríverslunarsamninga. Til að mynda þessi: „Ísland gerði fríverslunarsamning við Kína á undan öllum öðrum Evrópuríkjum. Hvað verður um hann og aðra EFTA-samninga þegar sameiginleg viðskiptastefna ESB tekur við?“Ísland er í dag aðili að víðtæku neti fríverslunarsamninga. Sá umfangsmesti og í raun mun víðtækari en hefðbundinn fríverslunarsamningur, er samningurinn um evrópska efnahagssvæðið. Að auki er Ísland aðili að 39 fríverslunarsamningum við 53 ríki í gegnum EFTA og gerðir