Bandarískur maður sem tilheyrir alþjóðlega ofbeldishópnum 764 var í dag dæmdur í 77 ára fangelsi fyrir ítrekuð og alvarleg brot gegn ungum stúlkum á netinu. Móðir íslenskrar stúlku sem varð fyrir barðinu á hópnum segir dóminn mikilvægan áfanga í afar stóru máli.Hópurinn herjar á börn á aldrinum átta til sautján ára á netinu, nær þeim á sitt vald og kúgar þau til ofbeldisverka og sjálfsskaða. Á meðal þolenda er íslensk stúlka sem var til að mynda þvinguð til að skaða sig í beinu streymi á netinu. Hópurinn stjórnaði lífi hennar og hélt henni í heljargreipum í rúm þrjú ár. BEITTI UNGAR STÚLKUR GRÓFU OFBELDI Á NETINU Kyle Spitze, félagi í hópnum, var í gær sakfelldur fyrir dómstól í Tennessee fyrir að hafa beitt ungar stúlkur grófu ofbeldi á netinu.Dómur yfir honum var kveðinn upp í dag. Sa