Hlekktist á í lendingu þegar nefhjól festist ekki niðri

Vélin datt á trýnið þar sem nefhjólið festist ekki niðri.AðsendEins hreyfils flugvél hlekktist á í lendingu á sjötta tímanum þegar nefhjól vélarinnar festist ekki niðri í lendingu, samkvæmt upplýsingum frá lögreglu. Þegar hún lenti datt hún fram fyrir sig og lenti á nefinu.Lögregla var kölluð út og slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu sendi dælubíl á vettvang.Tveir voru um borð í vélinni en engan sakaði.Reykjavíkurflugvöllur er lokaður sem stendur.
Hlekktist á í lendingu þegar nefhjól festist ekki niðri

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd