Frá árinu 2010 hafa sláturhús á Íslandi sóst eftir svokallaðri Halal-vottun á lambakjöt. Fjögur af fimm stærstu sláturhúsum landsins ætla að sækjast eftir slíkri vottun á sitt kjöt í ár en Sláturfélag Suðurlands (SS) ætlar ekki að gera það. Undanfarin þrjú ár hefur SS verið með slíka vottun en segir ekki þörf á henni í ár.Fréttastofa RÚV tók saman hjá fimm stærstu sláturhúsum landsins sem eru: Sláturhús Kaupfélags Skagfirðinga, bæði á Sauðárkróki og Hvammstanga, sláturhús Kjarnafæðis/Norðlenska á Húsavík, sláturhús SS á Selfossi og sláturhús Fjallalambs á Kópaskeri. Í samtölum við fréttastofu sögðust allir ætla að sækjast eftir vottuninni nema SS. Ástæðurnar fyrir því að vera með þessa vottun séu markaðslegar og lítill sem enginn munur sé á því hvernig sauðféinu er slátrað með eða án vottu