Það er „staðreynd“ að gjaldskrárhækkanir hins opinbera hafa átt þátt í að halda uppi þrálátri verðbólgu að undanförnu, fullyrðir seðlabankastjóri, sem hann segir sumpart birtingarmynd hinnar víðtæku verðtryggingu og til að leysa úr þeir þeim „stóra kerfislæga vanda“ dugar ekki til plástur eða bútasaumur. Við ákvörðun um hækkun vaxta var ekki horft mikið til stöðunnar í byggingarmarkaði, enda þótt Seðlabankinn viðurkenni að versnandi staða á þeim markaði sé sennilega stærsti óvissuþátturinn í hagkerfinu.