Matt Arnold var ranglega sakaður um þjófnað í stórmarkaðnum Sainsbury's í Lundúnum eftir að gervigreind gerði mistök. Honum var vísað út úr versluninni í kjölfarið en segir lífsreynsluna hafa verið óþægilega og neyðarlega en geta gefið vísbendingu um dimma framtíðarsýn. SKRAPP INN AÐ KAUPA MAT OG DRYKK Arnold er grínisti. Hann skrapp inn í Sainsbury's í East Dulwich í suðaustur-Lundúnum 6. ágúst til að ná í mat og drykki fyrir uppistand sem hann var með í næsta húsi. Hann var á sjálfsafgreiðslukassa að bíða eftir að starfsmaður myndi samþykkja áfengiskaup þegar tveir starfsmenn gengu upp að honum og sögðu að ekki væri hægt að afgreiða hann vegna atviks sem varð fyrr í vikunni.„Þeir komu til mín og sögðu að ég þyrfti að yfirgefa verslunina. Starfsmaðurinn sagði að gervigreindin hefði bor