SVÞ og sérvöruverslanir telja brýnt að Alþingi setji skýrar og samræmdar reglur um áfengissölu.Ruv.is / Anton BrinkSamtök verslunar og þjónustu ásamt sjálfstæðum sérvöruverslunum með áfengi skora á Alþingismenn að setja skýran lagaramma um vefverslun með áfengi. Þrjú fyrirtæki sem selja áfengi í gegnum netið hafa sætt ákærum og eitt hefur verið sakfellt.Í tilkynningu segir að neytendur hafi þegar gert upp hug sinn og vefverslun með áfengi sé orðin hluti af íslenskum veruleika. Samkvæmt könnunum hefur um þriðjungur landsmanna keypt áfengi í gegnum vefverslun.Brýnt sé að Alþingi viðurkenni þessa stöðu og tryggi ábyrga starfsemi með virku eftirliti og skýrum reglum um starfsemina - til dæmis leyfisveitingar, opnunartíma, staðsetningar og aðgengi.