Gæsluvarðhald framlengt vegna manndráps á Kársnesi

Gæsluvarðhald yfir tveimur mönnum sem eru grunaðir um að hafa banað öðrum manni á Kársnesi 9. ágúst hefur verið framlengt fram í næstu viku.Þetta staðfestir Elín Agnes Eide Kristínardóttir yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni.Fjórir eru grunaðir um verknaðinn. Tveir þeirra sæta gæsluvarðhaldi á Íslandi, einn á Spáni og einn í Póllandi.Í frétt spænska fjölmiðilsins El Periodico er greint frá handtöku eins mannanna. Þar segir að íslensk yfirvöld hafi lýst eftir manninum, sem sé með pólskan ríkisborgararétt.Hann hafði látið sig hverfa eftir morðið en 11. ágúst, tveimur dögum síðar, varð lögreglan í Barcelona vör við ferðir hans á hóteli nærri miðborg Barcelona.Lögregla setti upp eftirlit í grennd við hótelið og handtók manninn nálægt hótelinu. Hann er nú í gæsluvarðhaldi á Spáni.
Gæsluvarðhald framlengt vegna manndráps á Kársnesi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd