Kínverjum tókst í fyrsta sinn í dag að lenda fyrsta þrepi geimflaugar aftur á jörðinni. Hingað til hafa Bandaríkjamenn og þá fyrirtækin SpaceX og Blue Origin verið einu aðilarnir sem hafa búið yfir slíkri tækni, sem dregið getur verulega úr kostnaði við að koma farmi á braut um jörðu.