Kristján Kristjánsson segist ekki ætla að verja dögunum sínum úti á golfvelli eftir að hafa tilkynnt um starfslok á Bylgjunni, heldur sé hann á leiðinni í nýtt og mikilvægt starf. Það komi í ljós á næstu dögum hvað það verður.Kristján, sem stýrði Sprengisandi á Bylgjunni í tæpan áratug, tilkynnti hlustendum á sunnudag að þetta hefði verið hans síðasti þáttur.„Þetta hafði svo sem ekki langan aðdraganda og ég var ekki búinn að segja mörgum frá þessu,“ segir Kristján í Síðdegisútvarpinu á Rás 2, þar sem hann fer yfir ferilinn og rifjar upp skemmtileg augnablik. ALGJÖR FIRRA Kristján segist hafa fengið atvinnutilboð, fleiri en eitt, og eftir smá hugsun ákvað hann að taka einu tilboðinu. Hann segir ekkert til í sögusögnum um að stjórnarfólk Sýnar eða „auðvald“ hafi haft eitthvað með starfslo