Ekki er að sjá að vilji sé til þess hjá Samfylkingu og Flokki fólksins að kalla saman þing í þessum mánuði til að framlengja heimildarákvæði fyrir fjármálaráðherra og ríkisstjórn að framlengja lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti, en svo sem kunnugt er fellur hin tímabundna heimild um lækkun skattsins í 11% sem Alþingi veitti sl. vor úr gildi um næstu mánaðamót.