Eigendur segjast þurfa fjármagn til að áfram geti verið samkomusalur í Valaskjálf

Óvíst er að fleiri dansleikir, tónleikar eða leiksýningar verði í félagsheimilinu Valaskjálf á Egilsstöðum. Eigendurnir íhuga að breyta salnum í gistirými ef ekki finnast aðrar lausnir á kostnaði við reksturinn í samráði við sveitarfélagið. Formlegt samráð er hafið við sveitarfélagið en óvíst hvert það leiðir.Valaskjálf var byggð í samstarfi sveitarfélaga á héraði og vígð 1966 en seld 1998 og hefur verið í einkaeigu síðan. Auk samkomusalarins er rekið hótel og veitingastaður í húsinu. Samkomusalurinn fór illa í vatnstjóni í vor. Eftir að ljóst varð að gagngerar endurbætur þyrfti á salnum vegna tjónsins fóru núverandi eigendur að velta fyrir sér hagkvæmari rekstri segir Gísli Steinar Gíslason, einn eigenda.„Það er ein hugmyndin, og nokkuð góð hugmynd, að byggja svona hálfgert hylkjahótel,“
Eigendur segjast þurfa fjármagn til að áfram geti verið samkomusalur í Valaskjálf

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd