Evrópusambandið hefur ekki almenna valdheimild til að mæla fyrir um eignarhald, notkun eða forræði yfir náttúruauðlindum aðildarríkja. Ráðstafanir ríkja mega hins vegar ekki brjóta í bága við grunnreglur ESB – svo sem bann við mismunun á grundvelli ríkisfangs og samkeppnisreglur.Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýrri álitsgerð um forræði á náttúruauðlindum o.fl. í ljósi reglna Evrópuréttar.Þrír prófessorar við lagadeild Háskólans í Reykjavík unnu hana í sumar að beiðni ríkisstjórnarinnar.Álitsgerðin fjallar um það svigrúm sem er fyrir hendi samkvæmt gildandi ESB-rétti til að taka tillit til mikilvægra þjóðarhagsmuna, sérkenna og sérstöðu aðildarríkja.Í henni kemur meðal annars fram að löggjöf á sameiginlegri orkustefnu Evrópusambandsins sé þegar að stærstu leyti hluti af EES-samningnum