Tæknirisinn Meta gerði börn vísvitandi háð samfélagsmiðlunum Facebook og Instagram, að sögn fulltrúa um 30 ríkja sem höfðuðu mál gegn fyrirtækinu. Réttarhöld í málinu hófust í gær.Málið er rekið fyrir hönd 29 ríkja, meðal annars Kaliforníu og New York, sem segja Meta hafa brotið fjölda alríkis- og ríkislaga um friðhelgi barna. Þetta er stærsta skaðabótamál á sviði neytendamála í sögu Bandaríkjanna. HAGNAÐUR FREKARI EN ÖRYGGI NOTENDA Kviðdómur hlýddi á opnunarræður fulltrúa ríkjanna sem krefja fyrirtækið um milljarða bandaríkjadala í skaðabækur og vilja róttækar breytingar á samfélagsmiðlunum, og fulltrúa Meta, sem hafnar ásökununum.Megan O'Neill, aðstoðardómsmálaráðherra Kaliforníu, sakaði Meta um að hafa vitað af milljónum barna á aldrinum 11 til 12 ára á Instagram en gert lítið til að