Bróðir Andra Más Mortensen Birgissonar gaf skýrslu á þriðja degi aðalmeðferðar í Reykholtsmálinu. Hann sagðist ekki hafa beitt brotaþola í málinu ofbeldi eða séð að því hafi verið beitt. Hann bar þó ítrekað fyrir sig minnisleysi.Að lokum baðst hann undan skýrslutökunni þar sem hún reyndist honum of erfið.Brotaþoli segir að hann hafi verið beittur ofbeldi af Andra og manninum sem kom með honum í fyrstu. Bróðirinn sagðist ekki muna eftir því að Andri eða Ingunn hefðu beitt manninn ofbeldi. Andri er sakaður um mikið ofbeldi en Ingunn er sökuð um að hafa slegið manninn með hnúajárnum. Brotaþoli sagði að bróðirinn hefði beitt sig ofbeldi að minnsta kosti einu sinni með því að slá sig en bróðirinn kannaðist ekki við það.Allir sem eru ákærðir í málinu hafa nú komið fyrir dóm og gert er ráð fyrir