Pétur Már Mortensen Birgisson, einn ákærðra í Reykholtsmálinu og jafnframt sá yngsti, viðurkennir að hafa beðið brotaþola afsökunar á meðan umrætt mál stóð yfir. Hann segist ekki hafa þorað að fara af vettvangi vegna ótta við eldri bróður sinn. Skýrslutökunni lauk skyndilega eftir að símtöl, þar sem heyrðist í bróður hans, voru spiluð.