Gripinn við hreindýraveiðar án leiðsögumanns

Hreindýraveiðimaður varð uppvís að því að veiða tarf í síðustu viku án hreindýraleiðsögumanns. Austurfrétt greindi fyrst frá.„Við fengum ábendingar frá því að það væru veiðilegir menn hér á einu veiðisvæði,“ segir Jóhann G. Gunnarsson sérfræðingur hjá Náttúruverndarstofnun.Eftirlitsmaður fór þá af stað og fann bíl mannanna í Berufirði.„Þá kom í ljós að þar var kjöt í bílnum af hreindýrstarfi. Þá spyr hann viðkomandi um aðstæður og leyfi og slíkt. Þarna var að vísu maður sem átti hreindýraleyfi fyrir tarfi en þarna var enginn leiðsögumaður með í för,“ segir Jóhann.Veiðar eru ólöglegar án hreindýraleiðsögumanns og athæfið var tilkynnt til lögreglu. Jóhann segir að sá hátturinn hafi verið á síðastliðna þrjá áratugi.„Það á enginn að fara á hreindýraveiðar án þess að hafa með sér leiðsögumann s
Gripinn við hreindýraveiðar án leiðsögumanns

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd