Þriðjungi færri hefja nú nám í lögreglufræði miðað við í fyrra. Fjöldi umsækjenda og þeirra sem komast inn hefur verið breytilegur frá ári til árs allt frá 2021. Ólafur Arnar Bragason, forstöðumaður mennta- og starfsþróunarseturs lögreglu, telur að helsta skýringin á fækkun í ár sé að ekki fékkst fé í kynningarátak.„Núna í ár er embætti ríkislögreglustjóra búið að vera í aðhaldsaðgerðum og það var ekki til fjármagn í auglýsingaherferð að þessu sinni,“ segir Ólafur.Alls sóttu 189 um og 67 stóðust öll inntökuskilyrði og skiluðu sér í námið. Í fyrra voru 235 sem sóttu um. Þrátt fyrir þessa fækkun telur Ólafur ekki neina ástæðu til þess að hafa áhyggjur. Vel verði fylgst með og rýnt í hvað veldur fækkuninni. ÞURFA AÐ ÚTSKRIFA AÐ LÁGMARKI 40 Á ÁRI Fram til 2021 var hámarksfjöldi þeirra sem v