Upptökur sem ekki var hægt að spila á við upphaf aðalmeðferðar í Reykholtsmálinu svokallaða voru spilaðar þegar aðalmeðferð var fram haldið í morgun í Héraðsdómi Suðurlands. Erfitt reyndist að heyra það sem kemur fram á upptökunum vegna tæknilegra örðugleika.Sex Íslendingar, fimm karlar og ein kona, eru ákærð fyrir að halda manni föngnum á heimili sínu í Reykholti í Bláskógabyggð og beita hann harkalegu ofbeldi til þess að hafa af honum fé í apríl 2024.Líkt og áður hefur komið fram er fordæmalaust magn af upptökum til í málinu. Vitað er að upptökurnar náðu yfir vikutímabil. Sími Andra tók upp öll símtöl og einnig hljóð þegar hringt var úr símanum þó að símtölunum væri ekki svarað. Ekki hefur þó komið fram hvers vegna símtæki Andra Más tók upp með þessum hætti.Búist er við því að við lok da