Áttatíu og fimm ár eru í sumar síðan bandarískt herlið tók við „hervernd“ Íslands eins og það var orðað í samningi sem íslensk og bandarísk stjórnvöld gerðu með sér á þessum tíma, hálfu ári áður en Bandaríkin drógust formlega inn í átök síðari heimsstyrjaldar. Alla tíð síðan hefur Ísland óumdeilanlega verið á áhrifasvæði Bandaríkjanna, mesta efnahags- og herveldis heims. Tímamót...