Hyggst lækna Parkinson

Það er ekki nema von að fólk sem þekkir Parkinson-sjúkdóminn sperri eyrun þegar það heyrir hvað Arnar Ástráðsson heilaskurðlæknir hefur afrekað við rannsóknir sínar á sjúkdómnum. Um það er fjallað í nýrri grein í Læknablaðinu.Talið er að um 10 milljónir manna séu með Parkinson í heiminum en samkvæmt Parkinson-samtökunum eru um 1.200 einstaklingar greindir hér á landi. Augljósustu einkenni Parkinson-sjúkdómsins eru tengd hreyfingu eins og skjálfti, vöðvastífleiki og hægar hreyfingar.Hingað til hefur Parkinson verið ólæknandi sjúkdómur en lyf og rafskautameðferðir hafa bælandi áhrif á einkennin.Arnari og samstarfsfólki hans hefur hins vegar þegar tekist að lækna bæði rottur og apa af sjúkdómnum. Þessi einstaki árangur byggir á Nóbelsverðlaunaðri aðferð við að þróa stofnfrumur. Arnar hefur un
Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd