Alls hafa 13 verið handtekin við rannsókn manndrápsins í Vallargerði í Kópavogi sunnudaginn 9. ágúst, 12 karlmenn og ein kona. Fjórir eru núna í gæsluvarðhaldi vegna rannsóknar málsins, tveir hérlendis og tveir erlendis. Mennirnir ytra eru í haldi lögreglu á Spáni og í Póllandi.