Upptökur af símtölum úr síma Andra Más Mortensen Birgissonar, sem illheyrilegar voru þegar fyrst var á þær hlýtt á mánudag, voru spilaðar fyrir dómi að nýju í morgun. Hljóðbrotin varpa skýrara ljósi á það sem fram fór aðfaranótt laugardagsins 20. apríl 2024.