Peningastefnunefnd Seðlabankans hækkaði stýrivexti í morgun um 0,25 prósentustig, úr 7,75% í 8%. Vextir höfðu þegar verið hækkaðir tvisvar á þessu ári, um samtals hálft prósentustig.Fjórir nefndarmenn peningastefnunefndar studdu ákvörðunina að hækka stýrivexti en einn vildi halda vöxtum óbreyttum. Greiningadeildir bankanna höfðu spáð því að stýrivextir yrðu hækkaðir um 0,25%.Samkvæmt nýbirtri spá Seðlabankans er talið að verðbólga, sem mældist 5,3% í júlí, aukist enn frekar næstu mánuði en hjaðni tiltölulega hratt þegar komi fram á næsta ár. HÆKKUN OPINBERRA GJALDA OG STRÍÐSÁTÖK VALDA VERÐBÓLGU „Aukning mældrar verðbólgu hefur fyrst og fremst litast af hækkun opinberra gjalda og áhrifum stríðsátaka í Mið-Austurlöndum,“ segir í yfirlýsingu peningastefnunefndar. Þar kemur fram að undirlig