Boða allt að 70 % hækkun á máltíðum fyrir eldri borgara

Fulltrúar meirihlutans í velferðarráði Reykjavíkurborgar hafa samþykkt tillögu um gjaldskrárhækkun á máltíðum og heimsendum mat í þjónustuíbúðum og félagsmiðstöðvum frá og með 1. september. HÆKKUNIN ÓUMFLÝJANLEG Eftir hækkun verður verð á máltíð fyrir eldri borgara 1.900 krónur en var áður 1.100 eða 1.190 krónur. Þetta er hækkun upp á allt að rúmlega 70 prósent.Formaður velferðarráðs segir hækkunina óumflýjanlega. Gildandi samningur við fyrirtæki sem þjónustar mötuneyti hafi ekki verið fullfjármagnaður.„Það sem fráfarandi meirihluti gerði var að gera þennan samning sem kostar rúman hálfan milljarð, en lætur ekki fylgja með nema helminginn, 250 milljónir, þannig að sá peningur kláraðist í mars,“ segir Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir, formaður velferðarráðs. NÚVERANDI GJALDSKRÁ UN
Boða allt að 70 % hækkun á máltíðum fyrir eldri borgara

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd