Flutningabíll valt í Ártúnsbrekku

Flutningabíll valt við mislægu gatnamótin í Ártúnsbrekku í morgun. Tveir lögreglubílar og sjúkrabíll voru sendir á vettvang.Ökumaður flutningabílsins hlaut minni háttar áverka. Þetta staðfestir Unnar Már Ástþórsson, aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Búast má við umferðatöfum um gatnamótin og hann biður ökumenn að sýna tillitsemi og ró. Veginum verður lokað í skamma stund og umferð beint annað á meðan.Að sögn Unnars mun taka dágóðan tíma að rétta flutningabílinn af og koma umferð í venjulegt horf. Stór og sérhæfð ökutæki þarf til að koma ökutækinu á réttan kjöl. „Það kæmi ekki á óvart ef þetta tæki á aðra klukkustund,“ segir Unnar.
Flutningabíll valt í Ártúnsbrekku

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd