Játaði skýlaust þátt sinn í Reykholtsmálinu

„Ég játa núna skýlaust sakargiftir er varða frelsissviptingu gagnvart brotaþola,“ sagði unnusta Andra Más Mortensen Birgissonar sem ákærð er í Reykholtsmálinu. Þriðji dagur aðalmeðferðar í Reykholtsmálinu er í dag.Á meðal hinna ákærðu eru Andri Már og unnusta hans. Til stendur að bróðir Andra gefi skýrslu eftir hádegi. Alls eru sex Íslendingar ákærðir, fimm karlar og ein kona. Þau eru ákærð fyrir að svipta mann frelsi sínu í Reykholti í apríl 2024, kúga af honum fé og beita margþættu ofbeldi.Hún kaus að lesa yfirlýsingu en neitaði að svara spurningum eða láta bera undir sig gögn.Hún kveðst þó ekki hafa beitt hann ofbeldi en sagðist vita af því að hann hefði verið beittur ofbeldi svo ná mætti af honum fé.Hún neitaði einnig að hafa brotið gegn vopnalögum og að fíkniefni sem fundust við ranns
Játaði skýlaust þátt sinn í Reykholtsmálinu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd