Peningastefnunefnd Seðlabankans hefur í takt við væntingar hækkað meginvexti bankans um 25 punkta, sem er núna komnir á sama stað og snemma árs í fyrra, enda þótt einn nefndarmaður hefði kosið óbreytta vexti. Yfirlýsing bankans ber með sér mildari tón en áður og bent er á að undirliggjandi verðbólga sé tekin að hjaðna á suma mælikvarða.